meiri snjór meiri snjór meiri snjór
, en nei veðurguðirnir eru ekki sammála. Samt finnst mér alveg órtrúlegt hvað veðurspáin stendur hér....nánast upp á mínútu. Það var í gær að veðrið ætti að koma hér um 12 og vera búið um 14 og viti menn það stóðst nánast alveg hér hjá mér....ótrúlegt....svo finnst mér fyndið hvað fólk er rosalega hrætt að keyra í þessu skil þetta ekki...svo sem kannski vanari þessu heldur en danirnir. Bæði í gær og í dag kom skólabíllinn ekki að sækja börnin vegna veðurs, en það var EKKERT að veðrinu....en svona er þetta bara þannig að Stefán fór með þau í skólann og ég sæki þau....sem er svo sem ágætt....
....nú er ég að verða búin með lopapeysuna sem ég er að gera á Benóný þarf bara að ákveða hvort hún eigi að vera rend eða hneppt....kannski bara tilbreyting að gera hneppta svona einu sinni....gæti verið hummmm

....annars er allt gott að frétta af okkur, ég er að leita að dönsku-námskeiði fyrir okkur Stefán svo að maður geti nú farið að tala við fólkið hér án þess að nota ensku....samt er maður farinn að blanda saman ensku og dönsku svona stundum .hehehe
en það er órtúlegt hvað maður skilur hvað fólk segir sem maður talar við.jæja gott í bili
bæó
jæja smá fréttir
....svo af því að við fórum í kommununa sóttum við um leikskólapláss fyrir Benóný þannig að hann gæti byrjað sem fyrst....hann er alveg að spila út krakkinn, vantar svo Anton sinn og Dagbjörtu sína....þannig að nú þurfum við bara að bíða eftir svari frá leikskóla um hvenær hann kemst inn...vúhú...
...annars er smá sorg hér því það dó folald hér í nótt og finnst krökkunum það ekki gaman....og sögðu en Mamma það stóð í fæturnar í gær....en svona er þetta bara.
Veðrið er mjög gott núna það er sól og logn en ekki nema -3...það er svo sem bara fínt og er spáin þannig að það eigi að fara að verða frostlaust hér þessa viku...
jæja læt þetta duga í bili
bið að heilsa öllum
bæó
nýtt ár
við fórum á gamlárskvöld inni í Mariager að horfa á flugeldana og var það svipað og heima á Hvammstanga nema jafnara yfir tímann sem það tók.
við erum að bíða eftir símtali frá skólamálum hér í Mariager og til að vita hvenær Emilía og Ástvald meiga byrja í skólanum...alveg kominn tími á það....þau eru orðin frekar eyrðalaus greyin...
ég er samt ekki búin að sækja um á leikskóla fyrir Benóný...ætti kannski að fara að gera það, því hann spyr á hverjum degi: mamma minn gólann....og vill hitta Dagbjörtu og Anton. Því miður þá gengur það ekki alveg að hitta þau en vonandi bara þegar við förum til Íslands í sumar eða hvenær það verður.
á nýársdag fórum við í bíltúr bara svona eitthvað, keyrðum í norður þar til að snjókoman var orðin mikil og færð á veginum ekki sú besta, þá var haldið í vestur og svo í suður....en þá fór Stefán út á hraðbraut og var ég ekki að nenna að vera á rúntinum á hraðbrautinni (finnst það ekki spennandi), þá var ákveðið að kíkja aðeins inn í Randers og skoða miðbæinn þar og svo fórum við heim.
hesthúsið er orðið fullt núna eða það eru 13 hross inni, í gær var tekinn inn meri og í dag voru teknir inn 2 hestar....þetta er nú nóg í bili þar sem Stefán er bara einn að vinna í þeim....en það er samt hægt að taka inn fleiri....og er bara einn eða tveir sem ég get farið á (eða treysti mér til að fara á).
annars er allt gott að frétta héðan.
í gær fórum við í verslunarferð til Randers....ég hélt að jólaverslun væri hætt en váááá það var ekkert smá mikið af fólki í "kringlunni" sem við fórum í eiginlega jafn mikið af fólki eins og fyrir jól ef ekki meira....enda nenntum við ekki að vera þarna keyptum bara það sem við þurftum og fórum svo....úff
jæja nóg í bili, bið að heilsa þar til næst
bæó
Jólalegt í Danmörkinni

Gleðileg jól allir saman og vona að þið hafið haft það gott um jólin.
Það er jólalegt hér í Danmörkinni ennþá....héldum reyndar að snjórinn væri að fara en svo þegar við vöknuðum í morgun hafði snjóað í nótt...
...héðan er allt gott að frétta, búin að hafa það fínt yfir jólin og borða alveg meira en nóg...takk fyrir okkur allir sem einn...
....jólakortin kom síðar, þegar ég er búin að komast í prentara
sem ég get tengt við MÍNA tölvu. ....börnin eru frekar eirðarlaus, svo sem ekki skrítið þarf sem þau hafa bara hvert annað og okkur til að leika sér við, en Stefán er búinn að búa til rólu inni í hesthúsi fyrir þau, þannig að þau hafa eitthvað að gera.
....Ástvald er voða duglegur á hverjum morgni að fara með pabba sínum í hesthúsið og gefa....er reyndar voða duglegur að vera yfir daginn með pabba sínum þar....hann fær kannski kjarkinn aftur við að vera svona mikið í hesthúsinu og kringum hestana....hann er líka rosa duglegur að vera úti að leika sér.
...litli stubbur vill komast á hestbak á hverjum degi og er honum alveg sama á hvaða hest...bara komast á hestbak....það eru reyndar ekki allir hestar eða kannski bara einn sem hægt er að leyfa honum að fara á, því í húsinu er bara hross sem eru 5-7 vetra og mis tamin. Hann er svolítið fyrir að vera á flakki inni og úti.
...hún Emilía er nú mest fyrir að vera inni og hanga í tölvunni...en þar sem að það er ekki í boði verður hún að fara út líka....í dag ætlar hún að prófa að fara á hann Pilt sem ég er búin að fara á hestbak á síðustu daga, hann er frekar latur greyið enda nennir Stefán ekki á hann. hehehe.
....við reynum alltaf að fara öll út að gefa seinni gjöfina. Við erum búin að fara svolítið um hér í kringum okkur...mikið af gömlum og fallegum húsum hér í kring....þarf að taka myndir af þeim og setja á face-ið...
...en nóg í bili
bæ þar til næst
anna samur dagur en skemmtilegur
....í morgun fórum við starfsmenn leikskólans í heimsókn á þrjá leikskóla í Borgarbyggð, fórum í leikskólann Hraunborg á Bifröst, Ugluklett í Borgarnesi og Andarbæ á Hvanneyri....það var rosa gaman að koma á alla þessa staði hver öðrum ólíkari, þar sem að einn er Hjallastefnuleikskóli, annar er með svokallað frjálstflæði og þriðji vinnur eftir John Dewey og grænfána verkefni....við stoppuðum í Landnámssetrinu og borðuðum þar dýrindis fyllta kjúklingarbringu með salati og bakaðri kartöflu og bláberjaís frá Erpstöðum í Dölum eða súkkulaðiköku með rjóma....alveg æðislegur matur....vorum komnar til baka rétt fyrir fimm....
....svo var uppskeruhátíð barnanna hjá Þyt kl. 17, stóð Tóta sig bara vel með ræðuna sína og gekk hátíðin bara vel fyrir sig...börnin sem voru á reiðnámskeiði hjá félaginu fengu viðurkenningu og buff merkt félaginu....og pizzuhlaðborð gott hjá þeim....takk fyrir okkur Æskulýðsnefnd
....nú svo er bara að halda áfram að pakka og koma sér fyrir og gera allt hitt líka...
....Emilía er að pakka niður fyrir sundmót sem hún er að fara á í fyrramálið, Ástvald er í gistingu í Kolugili og Benóný er sofnaður....voða næs hjá okkur mæðgum bara....
jæja bið að heilsa þar til næst....nú svo styttist í heimsóknina í Danmörku og þar á eftir flutningar til Danmörku
bæó
flutningar ofl.
....netið var tengt hjá mér í dag og voða var ég ánægð yfir því....get þá talað við Stefán á msn-inu eða skype-inu....
nú er nóg að gera í skólanum, verkefnum að skrifa og skila á sínum tíma....og gengur það bara svona ágætlega....
en jæja veit bara ekki hvað ég á að segja meira í bili, ætla að halda áfram að hlusta á drenginn lesa
það til næst
bæó
stóðréttahelgin
en skemmtileg var hún....það byrjaði á föstudagsmorgun með að reynt var að fara í smölum fram á Víðidalstunguheiði, við fórum frá Hrappstöðum um 8.30 og frá á heiði eða að Dalsbrúnarhliði....það stoppuðum við í ca klst....meðan ákvörðun var tekin hvað ætti að gera, sem betur fer var bíll þarna með stóra hestakerru þannig að við vorum í skjóli....þvílíkt veður ojjjjjjjj
en sú ákvörðun var tekin að fara með fjóra gangnamenn fram að Fosshól í bílnum og hestana í kerrunni, aðrir gangnamenn urðu eftir við hliðið og aukafólkið tók auka hesta gangnamanna með sér niður að Hrappstöðum....þar biðum við eftir gangnamönnum/konum....vorum svo heppin að hún Dagga á Bakka kom með heitt kakó og kökur handa okkur....en við tókum nokkur svo ákvörðun að fara heim að Kolugili....Stuttu eftir að við komum þangað voru gangnamenn komnir niður og stoppuðu þeir ekki við Kolugil eins og vanalega heldur héldu áfram út að rétt........ég ákvað nú að fara á eftir en þá voru þau komin á leiðarenda og fór ég þá og sótti kerru heim að Lækjamóti til að ná í hrossin....ekki var hægt að hafa þau út því veðrir var frekar slæmt og ekki gott fyrir sveitt hrossin að standa úti um nóttina.....
mikið fjör var svo það sem eftir lifði dags, hvar sem maður kom alls staðar var stuð....hörku partý var svo á Lækjamóti um kvöldið og var spilað á gítar nánast í hverju herbergi....
...laugardagurinn byrjaði svo í réttinni um 10 og var þá réttað, veðrið var svona ágætt, kalt og sól á köflum....skiluðu sér í Lækjamótsdilkinn nánast öll hross....því miður vantaði tvö....rekið var svo heim úr réttinni, stóri og litlir....þegar heim var komið var á borðum dýrindis hangikjet, mús og meðlæti....við hjónin skruppum svo heim eftir það í sturtu og gera okkur klár fyrir kvöldið....þegar við komum aftur heim að Lækjamóti var byrjað að spila á gítar og var spilað og sungið
þar til að á ball var farið
....Geirmundur kallinn Valtýrsson sá um tónlistina á ballinum og var bara alveg ágætt....undur og stórmerki gerðust þar sem að bóndinn dansaði ALLAN tímann og settist ekkert niður ( sem aldrei hefur gerst áður, batnandi mönnum er best að lifa)....en eftir ball var haldið í hjólhýsið heima á Lækjamóti........það var yndislegt að liggja svo í morgun í hjólhýsinu og hlusta á fuglana....
....en annars takk allir fyrir yndislega helgi....
....nú er bara leti það sem eftir er dagsins...
þar til næst
bæó
vá hvað er langt síðan síðast
....mikið er í gangi á þessu heimili....búin að selja húsið og jafnvel á leiðinni að flytja erlendis....ég hreinlega veit ekki hvar ég á að byrja að pakka, svo þarf að skrifa ritgerð í þessari viku....þar sem að Tóta systir er að fara í aðgerð á auga í vikunni þar á eftir, þannig að hún skrifar ekki mikið þá....en já svona er nú allt á þessum bæ í bili svo sem reyndar aldrei lognmolla hér....
....já já gleymdi alveg að segja frá því að Stefán er í Danaveldi að vinna á búgarði við tamningar í viku og svo kemur í ljós hvort að honum líki vel og þeim við hann....en Benóný heldur að pabbi sé að vinna á gröfunni og hann ætlar að fara með honum í hana
....en Ástvald ætlaði bara að fara strax með pabba sínum en af því að það var ekki hægt þá vildi hann bara fá hund
....eins og hægt sé að skipta bara sí svona um umræðuefni.... hann er æði hann Ástvald er samt ekki alveg að höndla það að pabbi hans sé ekki heima....en hún Emilía greyið er alltaf eins....bara fylgir straumnum........en Stefán kemur heim á fimmtudaginn næsta, því það eru stóðréttir um næstu helgi...Jibbý

verður bara fjör....en já svo kemur bara í ljós hvort hann fari út aftur eða ekki og þá hvenær ég og krakkarnir komum til með að fara út....jæja nóg af hugsanagangi í bili
skrifa fljótlega aftur
bæó
kominn tíimi til
þá er nú kominn tími í nýja færslu..
....er í skólanum eins og er...og endalaust að mála, bara gaman.....vorum í gær í þrjá klukkutíma að mála og þvílíkt snilld. við máluðum fjórar myndir sem byrjaði í andlistmynd og endaði í abstrakt af andlitismyndinni. misgóðar en samt rosa gaman. enda kennarinn alveg frábær. á eftir því var svo sálfræði hjá henni Sigrúnu hún er æði....við ætluðum síðan í pottinn en vorum of latar til að athuga hvort vatn væri í honum, horfðum bara á Gilmore og borðuðum Subway. ætluðum snemma að sofa en föttuðum hvernig ætti að nota autocity-tónlistar-forrit og gjörsamlega MISSTUM okkur í því að gera lag fyrir lokaverkefnið í þessum listaáfanga. alveg rosa gaman. nú erum við sestar að klára listaverkið sem fylgir tónlistinni og powerpoint showið sem fylgir þessu líka þannig að allt búið og við vorum að hafa áhyggjur af þessu....pifff bara duglegar.....
....nú eru æfingar að byrja fyrir hestasýninguna sem verður 8.apríl í reiðhöllinni og svo á Akureyri fyrstu helgina í maí. Emilía og Benóný ætla að vera með en Ástvald er ekki alveg að fíla hesta þessa daga. En Benóný er sko hestasjúkur, það líður ekki sá dagur þar sem að hann biður um að fá að fara í hestahúsi og "minn hestabak".
og svo er bara brosað þegar komið er á bak og grátið þegar farið er í heim.
....jæja en þetta er nú gott í bili héðan frá Akureyri.
þar til næst
bæó
aaarrrrgggggg.........
, jújú skellti í tvöfalda muffins og byrjaði að baka....hélt nú að formin myndu duga en neinei þá átti ég ekki nóg af formum
(sem kemur aldrei fyrir hjá mér en einhvern tíman er allt fyrst)....nú þannig að ég ákvað að skella mér í kauffélagið og kaupa fleiri form svo að ég gæti klárað.....en nei,nei ekki til form og hafa ekki verið til lengi
ertu ekki að grínast

......sem betur fer hitti ég Tótu á leiðinni heim og hún hringdi í Öldu og Alda gat hjálpað mér
KNÚS Á ÞIG ALDA TAKK ÆÐISLEGA.....þannig að ég tók gleði mína á ný.....en svo er ég að setja í formin og heyri einkennileg hljóð úr stofunni
....viti menn er ekki litla skrípið mitt að plokka stafina af tölvunni minni
ég er ekki hin kátasta í augnablikinu og hann langt frá því að vera í náðinni.....þetta er svo skrítið, því að hann lætur hana alltaf í friði þegar enginn er í henni.....nú þannig að ég fór að setja takkana á og gleymdi næstum því kökunum í ofninum
.....en þær brunnu sem betur fer ekki það er hægt að borða þær.....en af tökkunum að segja kom ég þeim á og virk fínt allir nema space-takkinn þarf að ýta á miðjuna á honum til að hann virki.....og komst að því núna að ég víxlaði x og c....laga það eftir smá.....kannski þegar reiðin verður runnin af mér.........annars fórum við í mjög skemmtilega fjölskylduferð með björgunarsveitinni upp að Káraborginni og alla leið upp á Þrælsfell....veðrið var æði og ekki spillti fyrir að sólin skein þó svo að mikið frost væri....en bara gaman
, svona ferð þarf að endurtaka....ekki spurning........nú fer senn að líða að fyrsta móti í hestakeppninni hér á þessu svæði og kemur það til með að vera þann 13. feb. nk. í reiðhöllinni hér á Tanganum....mikil umgjörð og fjör er um keppnina og góður liðsandi held ég bara líka....ég hlakka til að fara að horfa á og hafa gaman
.... Stefán og Tóta ætla að keppa þannig að maður verður að mæta ekki spurning.....og hafa myndavélina með.........jæja þá er reiðin aðeins farin að slakna og ég ætla að hætta núna, verð að fara að læra svolítið
bið að heilsa í bili
bæ
